Minningar­sjóður Ölla

Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.

Það er góð tilfinning fyrir móðurhjartað að Ölli, sem lét lífið langt fyrir aldur fram, skuli núna mörgum árum seinna, enn vera að gefa af sér eins og honum var svo eðlislægt. Það er mín von að sjóðurinn lifi og dafni og hjálpi börnum sem þurfa aðstoð við að láta drauma sína rætast og fá að iðka íþróttir eins og önnur börn í samfélaginu.

- móðir Ölla

Hver var Ölli

Minningarsjóður Ölla er stofnaður til minningar um körfuknattleiksmanninn Örlyg Aron Sturluson sem var ekki lengi að stimpla sig inn sem mesta efni í sögu íslensks körfubolta eftir að hann hóf feril sinn með meistaraflokki Njarðvíkur árið 1997, þá einungis 16 ára gamall. Hann varð undir eins lykilmaður í liðinu sem varð Íslandsmeistari árið 1998.

Eftir frábært tímabil hélt Örlygur út til North Carolina í Bandaríkjunum til þess að stunda nám og spila körfubolta með Charlotte Christian Knights undir stjórn Hall of Fame NBA leikmannsins Bobby Jones sem varð meistari með Philadelpia 76ers árið 1983. Bobby var einnig fyrsti leikmaðurinn í sögunni til þess að fá nafnbótina sjötti maður ársins en hann afrekaði að spila fjóra All Star leiki og var valinn í varnarlið deildarinnar tíu ár í röð.

Eftir árangursríka dvöl í Bandaríkjunum snéri Örlygur heim og hóf aftur að leika með Njarðvík þá orðinn 18 ára gamall. Örlygur spilaði þrjá A-landsleiki og nokkra unglingalandsleiki fyrir tímabilið. Hann var orðinn einn af albestu leikmönnum deildarinnar tímabilið 1999-2000 þegar hann lést af slysförum 16. janúar árið 2000, daginn eftir að hann spilaði Stjörnuleik Körfuknattleikssambands Íslands.

Sjá meira

Heimildarmynd um Ölla eftir Garðar Örn Arnarson

Myndin rekur feril Ölla og gefur áhorfandanum tækifæri á að kynnast þessum einstaka dreng í gegnum vini hans, þjálfara, mótspilara og ættingja. Myndin var frumsýnd haustið 2013.